miðvikudagur, febrúar 27, 2008

Hvað er að gerast??


Hellúúúú

Ég tók mig til að varð hvatvís í gær.. Með því helst að kaupa mér nýja fartölvu. Hún var bara ansi ódýr. Flott og með stórt minni svo að ég þarf ekki lengur að hafa áhyggjur af því að gamla tölvan mín krassi og öll skólagögnin mín tapist því nú er ég komin með nýja tölvu og færði yfir á hana :D Nú þarf ég bara að venjast VISTA og office2007 því ég fæ reynslupakka á það í 3 mánuði :D Riiisa ánægð..


Við Arnar ætlum líka í Interrail í sumar - ef þið lumið á einhverjum frábærum gullkornum og fróðleiksmolum við svona ferðir þá endilega látið okkur vita :D Váh hvað ég hlakka til :D Nú er bara verið að plana og ákveða o.s.frv. Og þegar maður er að því þá langar mig baaara að ferðast eftir útskrift. Núna langar mig mest að fara í enskuskóla til Ástralíu þar sem ég get unnið með. Það kostar vissulega mikinn pening en maður á að fjárfesta í menntun!


Talandi um menntun. Nú er ég rúmlega hálfnuð með háskólanámið mitt. Á þessum tíma á næsta ári verð ég að klára og útskrifast væntanlega sem tónmenntakennari (ég þurfti því miiiður að hætta á leiklistarbraut því að það var bara ooof mikið að gera). Ég ætlaði alltaf að taka master í stjórnun en núna langar mig eiginlega meira í söngnám eða tónlistarnám :s hvað á maður að gera.. ég bara veit ekki *-)

Ég hef oft skammað sjálfan mig fyrir að hrósa ekki fólki þegar það gerir eitthvað gott. Þegar ég fæ hrós líður mér rosalega vel þó ég fari alveg í hnút og afhverju ekki, þegar maður hefur tækifæri til, að láta öðrum líða vel? - Þetta er nýja stefnan mín (þó ég gleymi því stundum) þ.e. að hrósa fólki þegar það hefur staðið sig vel. Fleiri ættu að gera slíkt hið sama :)

En vó vó vó - þetta er búið að vera ooof lang frá mér..

samantekt : gaman að vera til - lífið er yndislegt og hrós er æði gæði

kv. Ásta Björg :D

miðvikudagur, febrúar 13, 2008

ummm.. nóbboddís pöörfekt..

Ókey, ég viðurkenni það! Ég er að gera upp á bak í skólanum. Ég er eftir á með öll verkefni.. þarf að segja mig úr einum áfanga og vaka fram á nótt til að vinna þetta allt upp! Svo er að koma að þessu vettvangsnámi og ji minn eini það tekur allan frítímann minn (og þá þarf ég samt að hafa tíma fyrir skriljón önnur verkefni)! urrg

Annars er voða lítið að frétta, bara læra, vinna, skóli..! Ég er alveg dottin ofan í Gossip Girl (já ég veit hvað þið eruð að hugsa, ef þú ert alltaf glápandi á sjónvarpið er ekki skrítið að þér gangi illa í skólanum en hei! maður má taka 40 mínútur einu sinni í viku til að slaka á..right? (þó þær seu aðeins fleiri.:!)).

Það var verið að taka úr mér endajaxl síðasta mánudag og váh, hvað mér er illt í kjaftinum! Maður reynir þó að bera sig vel og brosa og svona, en ég tala örugglega aðeins minna núna en ég geri venjulega!

En nóg komið að kvarti. Ég ætla að drífa mig í klippingu og litun sem fyrst, ákvað í samráði við vinnufélaga mína hvernig hárgreiðslan á að vera og váh hvað ég er spennt! :D váhváhvíva! :D

Svo kemur yngsta systir mín til mín í pössun í rúma viku í apríl :D Þá verður hún 11 mánaða og örugglega æði gæði að hafa hana hjá mér, litla krúttið :D

En núna ætla ég að læra smá, athuga hvort ég geti minnkað fáfræði mína eitthvað aðeins..

kv. Ásta Björg

laugardagur, febrúar 09, 2008

Lion King


Jæja, ég fór ekki í bústaðinn því að það er klikkað veður og því ófært :( Við ætlum þó að sjá til með að fara í fyrramálið :D

Í stað þess að eiga rómó stund í sumó þá fórum við út að borða á Ítalíu (ohh.. ég elska þennan stað, alltaf góður matur og notalegt að vera). Ég fór aðeins á netið og fann yndislega síðu sem heitir Movie-A-Minute og má sjá ofurstutt handrit af myndum þar

t.d. fyrir ykkur sem ekki hafið séð Lion King

Scar
You killed your father.
Simba
(runs away)
Nala
We need you.
Simba
(runs back)



THE END

Njótið vel

kv .Ásta Björg

mánudagur, febrúar 04, 2008

Stutt létt og laggott


Í gærkvöldi áður en ég fór að sofa datt mér í hug skriljón hlutir til að skrifa um hér, ég ákvað þó að vera skynsöm og fara að sofa í stað þess að rífa mig uppúr rúminu, kveikja á tölvunni og byrja. Það varð þó til þess að núna, þessa stundina hef ég ekkert að segja. Set inn nokkra punkta og kalla það gott:

  • Ég er loksins byrjuð í skólanum á fullu :D

  • Bollan sem ég keypti mér í hádeginu í tilefni af bolludeginum var ekki góð

  • Í allan dag hefur mig langað að lúlla en Arnar hefur nánast alltaf séð til þess að ég væri að læra
  • Ég er búin að komast að því að það verður nóg að gera í febrúar, engin afslöppun í skóla, vinnu og líkamsrækt

  • Ég og Rúna sem er að vinna með mér erum byrjaðar að æfa í Baðhúsinu
  • Núna á helginni erum við Arnar að fara í sumarbústað því á föstudaginn erum við búin að vera saman í heil 5 ár.. úff úff úff..!

  • Mér tókst að taka hæðirnar í gegn á meðan ég var veik heima, og er að halda því við! Ansi stolt af því

  • Ég er sátt við að vera hætt við Lögfræðina og Stjórnmálafræðina - elska skólann minn (fyrir utan kannski hljóðritunina sem þarf alltaf að troða inn allstaðar)
  • Bíllinn minn tók upp á því að vera erfiður á laugardaginn - Við Arnar ætluðum okkur að gera fullt af hlutum en enginn þeirra stóðst. Maður verður alveg handa og fótalaus þegar bílinn er ekki til staðar..!

  • Núna ætla ég aftur á móti að halda áfram að læra því eftir hálftíma þarf ég að leggja af stað í Baðhúsið að hitta Rúnu.. Nóg um að vera..



kv. Ásta Björg

þriðjudagur, janúar 22, 2008

Ég er í sjokki


Ég viðurkenni það að mér fannst hann æði í 10 things I hate about you..



http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/01/22/heath_ledger_latinn/

ég veit ég er algjör kveif en svona hlutir fara rosalega inn á mig..! (þó það sé fólk sem ég þekki ekki neitt!*)

mánudagur, janúar 21, 2008

gleðilegt nýtt ár

Þá er maður loksins að hafa sig í það að skrifa hérna inn. Ég get ekki sagt að það sem af er ári hafi verið yndislegt því fljótlega eftir áramót réðst flensan á mig og hefur verið að halda mér frá skóla þar til nú. En auðvitað þegar hurð lokast opnast gluggi og loks þegar flensan hætti fékk ég tannpínu sem endaði á því að dregin var úr mér endajaxl. Það átti reyndar að gera það fyrir 2 og hálfu ári síðar en nú gat það ekki beðið lengur. Í morgun fór ég í sakleysi mínu til tannlæknis og kom heim einni tönn og nokkrum þúsundköllum fátækari. Ég er ekki enn byrjuð í skólanum því að fyrstu vikuna var vettvangsnám (og ég var e-ð veik í því) svo var ég heima fyrstu vikuna í skólanum en ég vona að á morgun verði ég hress þó andlitið á mér sé töluvert stærra en það á að vera út að tannleysinu.
Annars var árið nú gott, ég var heima hjá Arnari og fjölsk. á gamlárs og mikið var yndislegt að taka á móti nýja árinu í fanginu á honum Arnari. Við skutum upp einum flugeld, miðnætur bombunni okkar sem kostaði 500 krónur og lögðum þar með inn okkar framlag til björgunarsveitanna stolt :)
Ég nenni ekki að skrifa inn einhvern annál enda að koma febrúar, árið leggst þó vel í mér enda eins og máltækið segir, "fall er fararheill". Næst á dagskrá er Akureyri - vinnuferð og Borganes - bústaðarferð. Svo er planið tekið á USA í mars (sem ég vona að verði að veruleika). Annars vit ég ykkur vel að lifa og ég vona að ég verði duglegari að skrifa inn á nýja árinu..
kv. Ásta Björg

föstudagur, desember 28, 2007

Jólaglens


Fyrir ekki svo löngu síðan og frekar langt í burtu þá var jólasveinninn aðgera sig kláran fyrir sitt árlega ferðalag til byggða. En undirbúningurinn gekk allur á afturfótunum.

Fjórir af álfunum hans voru veikir og lærlingsálfarnir, sem þurftu auðvitað að leysa hina af, bjuggu ekki leikföngin tilnógu hratt svo sveinki var farinn að finna fyrir smá stressi á að standast ekki tímaáætlun.Til að slá aðeins á stressið þá fer hann í vínskápinn sinn og ætlar að fá sér einn sterkan út í kaffið til að athuga hvort hann nái ekki að róa signiður en sér þá að álfarnir hans höfðu komist í vínskápinn og það var ekki dropi eftir.

Við að sjá það þá magnast stressið upp úr öllu valdi og hannmissir kaffibollan sinn í gólfið þar sem hann brotnar í spað.Hann fer og sækir kúst en sér þá að mýs hafa étið öll stráin á hausnum á kústnum svo hann kom ekki að neinu gagni.

Þetta var nú ekki til að bæta skapið hjá sveinka og þegar hann gerði sigtilbúinn til að öskra, í þeirri von að losna við eitthvað af jólastressinu,þá hringir dyrabjallan. Hann fer til dyra og sér þar lítinn engil með stórt jólatré undir arminum.

Engillinn segir við sveinka: " Hvar vilt þú að ég setji þetta tré, feiti?"
.........og þannig kom það til að það er hafður engill efst á jólatrénu

miðvikudagur, desember 26, 2007

Gleðileg jól.. Ég er búin að hafa það rosa gott hérna heima.. LETI LETI LETI og knúserí því litla systir er alveg fullkomin knúsdúkka :D Mér finnst þó vanta Arnar minn - þoli ekki að það þurfti að vera annað hvort eða - ekki bæði :(
Það var brjálað að gera fyrir jól - jólagjafainnkaup ;) það var þó mjög gaman og sem BETUR FER finnst mér gaman að pakka inn jólagjöfunum því það var NÓG að pakka inn OG ég gerði það strax því á fim. fyrir jól tognaði ég svo illa í hægri hönd að ég fór ekki að geta notað hana fyrr en á aðfangadag en þó bara rétt, á enþá í vanda með hana og er mjög máttlaus í henni :s


Ég fékk alveg yndislegar jólagjafir - takk svo mikið mikið fyrir mig. Ég get ekki verið annað en ánægð með allan þann fjölda gjafa sem ég fékk og þann mikla hug á bak við þær, takk elskurnar mínar :)


Ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili því ég á erfitt með að skrifa á lyklaborðið.. Bið að heilsa öllum og vonandi hafa allir átt jafn yndisleg jól og ég.. :D
Við Salvör Sól á aðfangadag
Kveðja, Ásta Björg

fimmtudagur, desember 13, 2007

þriðjudagur, desember 11, 2007

Skólinn búinn.. :D

Þá er skólinn minn formlega búinn.. Öll verkefni komin til skila (næstum því allavega..!) og biðin eftir einkunnum tekin við.. Váh hvað ég vona að þær komi sæmilega út!

Núna er bara vinna, klára að koma sér fyrir, jólagjafainnkaup (samt búin með meirihlutann) kortagerð og kökubakstur..

Ef þið viljið koma við er ég yfirleytt heima.. það er svo frábært að vera hérna - búin að skreyta inni hjá mér og svona..

Hlakka til að heyra meira frá ykkur..

kv. Ásta Björg

mánudagur, desember 10, 2007

Er að læra, flutt upp - það er bara æði :D á morgun verður skólinn búinn

bið að heilsa.. bæjjj

miðvikudagur, desember 05, 2007

Jólagjafir..

... Venjulega þoli ég ekki þegar ég er spurð hvað mig langar í í jólagjöf, það er yfirleitt ekkert sérstakt, ég er ánægð með allt. Núna er þetta draumurinn! jáhh.. mikið vildi ég óska að ég ætti peninga fyrir svona flík!

Væri alveg til í eina svona líka

Annars heppnaðist maðurinn dúndur vel enda snillingar þar á ferð (Steinunn þú ert yfirbakari ;) )

kveð í bili, Ásta Björg

mánudagur, desember 03, 2007

BÚIN Í PRÓFUM

... langaði bara að segja ykkur að ég er búin í prófunum {1/1}

núna er bara verkefna vinna eftir {0/6} (klára eitt í dag vonandi (eftir vinnu í WorldClass) 3 á morgun (fyrir vinnu í Félagsmiðstöðinni) eitt á miðvikudag og síðasta á fimmtudag/föstudag)

Svo verður dúndurgóður kvöldmatur ala Rúna/Ásta hjá okkur annaðkvöld í vinnunni mmm.....

laugardagur, desember 01, 2007

Desember til Dásemdar



Þessi kona gladdi mig mikið þegar ég fór inn á MBL í morgun - þetta þýðir náttúrulega margt:


Alveg að verða búin í prófum (ég er náttúrulega ekki byrjuð en verð búin 3. des - á maður ekki að vera jákvæður??)


Útborgun (ekki lengur fátækur námsmaður í nokkra daga..!)


Stutt í að ég fari vestur og faðmi alla að mér sem mér þykir svo rosa rosa vænt um


Stutt í Guðbjargarafmæli OG dagana sem snúast um frið og kærleik - ég elska báða hluti


og svo að lokum..


Þessi mánuður gefur svo mörg tækifæri til að gleðja þá sem standa þér næst
Vonandi eru allir hamingjusamir í dag og njóta þess að þrátt fyrir stuttan dag þá eru að týnast upp ljós í hverju horni til að lýsa upp lífið..
(í tilefni að því er ég búin aðsetja inn nokkur jólalög og jólalegri myndir)
elska ykkur, tja lang flest örugglega ;)
kv. Ásta Björg

föstudagur, nóvember 30, 2007

I don´t want a lot for christmas, there is just one...

All I want for christmas iiiiiis yoooouuuu..... búmmstja búmmstja búmmstja... yeah...


Klárlega uppáhaldslagið mitt núna enda mesta stuðlagið um þessar mundir sem við btw rústuðum (á góðan máta vona ég) á tónleikunum í gær :)


Tónleikarnir eru s.s. búnir, gékk bara fínt, strax farin að sakna hópsins sem vann að þeim enda frábært fólk á ferð (held að enginn verði svikin af hæfileikaríkum tónmenntakennurum í framtíðinni!)


Núna er ég í lessalnum upp í skóla - búin að vera síðan á hádegi..! reyndar ekki að læra allan tímann, tók mér klukkutíma pásu milli tvö og þrjú því að við (ég og nokkrir bekkjarfélagar ásamt kórnum í kennó) vorum að spila fyrir fólk sem var að koma af málþingi sem haldið var í skólanum. Ansi mikið stuð :) Ótrúlegt hvað ég sakna að vera að troða svona upp hér og þar.. það er náttúrulega bara gaman (þegar vel gengur!)


Siðfræðin á nánast hug minn allan um þessar mundir enda próf í henni á mánudaginn, þó er ég að basla við að klára einhverja leiðarmöppu í framsögn, dagbók/leiðarbók í söng, ásamt því að berjast við ótrúlegt jólastuð.. Ahh.. ég elska jólin..


Annars (eins og áður sagði) kem ég/fer ég vestur 22. desember og aftur suður 30.. þannig að það er vikustopp fyrir vestan.. mmm.. knús og afslöppun þar. Fékk þær fréttir í gær að litla Salvör Sól er búin að segja fyrstu orðin sín "mamma" og "pabbi" svo er hún farin að velta sér, borða mauk og allan pakkan. Váh hvað ég sakna allra þarna fyrir vestan (jáh og núna var að byrja lag í spilaranum sem heitir "Please come home for christmas" með Bon Jovi - tákn??? )

En allavega - allt æði gæði að frétta.. alltaf jafn gaman :)


Eins og ég sagði áður er ég komin með nýtt númer - verð samt með gamla yfir hátíðirnar enda er ég ekki viss um að nýja númerið virki þarna fyrir vestan..!) þannig að ef þið ætlið að senda jólakveðjur eða e-ð yfir jólin (á meðan ég er heima á Hanhóli) þá er besta að senda í gamla númerið :D



Hlakka til að hitta ykkur öll elskurnar


jóla - stuð - lærikveðjur
Ásta Björg

sunnudagur, nóvember 25, 2007

Afslappandi jólatónlist


Ég er búin að finna FULLKOMNA læritónlist

JÓLALÖG!

þessi rólegu, helst ekki íslensku þ.s. þau eru yfirleitt of grípandi. Jólatónlist er svo afslappandi, oftar en ekki mikill friður sem fylgir henni Hún svo skemmtileg og létt og ljúf. Ég var mikið búin að vera að vandræðast með hvað ég ætti að læra og hvar ég ætti að byrja o.s.frv. sem á það til að koma fyrir þegar of mikið er úr að velja. Ég ákvað því að setja jólatónlist á fóninn, setjast við tölvuna og byrja og viti menn, núna er ég búin með tvö mikilvæg hópverkefni sem lá á að gera og samt ekki búin að eyða miklum tíma í það.

Annars er allt voða gott að frétta, kominn með nýjan síma (loksins - hinn var alveg ómögulegur) og reyndar nýtt númer líka! Ef ég er ekki búin að láta þig vita endilega láttu MIG vita í gamla númerið svo ég geti sagt þér nýja númerið :) Ætla að hafa bæði virk í nokkra daga.

Er heima hjá Arnari núna. Áðan var ég í makindum mínum að hlusta á afslappandi Kenny G jólaútsetningar og að læra en skyndilega varð allt svart. Þá hafði rafmagnið farið hér í Kópavoginum. Ef það minnti mann ekki á barnæskuna þá veit ég ekki hvað. Þegar maður var heima hjá mömmu og pabba í sveitinni milli jóla og nýjárs, brjálað veður búið að vera, allt í einu fer rafmagnið og þegar maður er búinn að átta sig á því að ekki er hægt að strauja eða ryksuga í ragmagnsleysinu er bara kveikt á kertum, spilið sem fjölskyldan fékk í jólagjöf tekið upp og besti tími ársins verður að veruleika.. - Gleðilega Hátíð..


Ég er að fara heim 22. des og verð fram á 30 des. mmm hvað það verður yndislegt..

Ég vona að allir hafi notið helgarinnar og átt góðar stundir með vinum og vandamönnum

Mín var allavega frábært í alla staði

Hafið það gott - kv. Ásta Björg

laugardagur, nóvember 17, 2007

Váh, það er næstum því mánuður síðan ég skrifaði hérna inn síðast :s

Það er alltaf nóg að gera hjá mér. Ég er búin að fera með einhverja pest, en samt tekist að halda áfram í skólanum og vinnunni og öllum pakkanum. Núna er ég uppi í skóla að æfa mig á píanóið og taka upp hljómborðsleikinn minn, má nú alveg ganga aðeins betur skal ég ykkur segja :s

Allavega, við í vinnunni höfum verið ansi hugmyndarík og dugleg og gerðum okkur lítið fyrir og bjuggum til eitt stykki dansatriði við "Allt fyrir ástina" með Páli Óskari. (hann var ekki með, lagið er bara eftir hann). Til koma þessa atriðis var út af svokölluðum tvenndaleikum starfsmanna ÍTR og er í þeim keppt í íþróttum og hæfileikum. Við unnum hæfileikakeppnina btw :D (vúhú) ! :D

Núna fer svo að líða að jólum og ég fer bara í eitt lokapróf.. jibbí jarí..! Þannig að ég er komin svona næstum í jólafrí 3. des, á reyndar þá eftir að skila ritgerð og verklýsingum en það er auka :D

Eníveis.. nennekki að vera á netinu lengur, ætla að gera e-ð sniðugt.. bæjj :D

kv. Ásta Björg

mánudagur, október 22, 2007

Trúmanþátturinn = lífið mitt..!

Ég hef nú aldeilis hrapað niður í skrifum síðan skólinn byrjaði! Það er hugsanlega vegna þess að það er ekkert að frétta OG mikið að gera. Allavega eitthvað sambland af þessu..

Núna ætla ég þó að skrifa nokkra puntka um hve lífið mitt er ótrúlegt!

Ég viðurkenni fúslega að ég er fátækur námsmaður - eins og svo margir aðrir..


En hvað er málið með það að þegar peningarnir eru sem minnstist þá ákveða kennarar að bæta við tonnum af aukabókum til að lesa eeða að allt þetta sem maður kaupir nokkrum sinnum á ári sbr. sjampó og hárnæringu, ilmvatn, uppþvottarlög og bara allt þetta venjulega (og svo klárast maturinn líka á sama tíma). Afhverju getur þetta ekki deilst niður á nokkra mánuði eins og sjampóið og hárnæringin klárast einn mánuðinn, ilmvatnið annan, uppþvottalögurinn hinn o.s.frv. Stundum finnst mér eins og ég sé í Trúmanþættinum þ.s. einhver er búin að plana þetta allt fyrir mig til að gera lífið sem flóknast..!

Annars er próftaflan komin í hús, er bara í tveim prófum mánudagana 3 og 10 des. Sem væri fínt fyrir utan það að síðustu 3 skóladagana þ.e. 28,9 og 30 nóv (mið, fim og fös) er ég að skila einhverjum 10 lokaverkefnum (og talan 10 er ekki ýkt!) æjh.. það reddast, vonandi :D Ég hef þá líka bara nægan tíma í fríi áður en ég fer vestur á jólunum ;D


Á fim, fös, lau og sun verður litla Salvör Sól hjá mér á meðan Mamma og Jói fara á árshátíð vinnumálastofnunar. Þannig að ég verð upptekin allanæstu helgi. Þetta var löngu planað svo að það er ekkert hægt að gera í því, held þetta sé eina helgin þar sem e-ð er planað fyrirfram af öllum þeim sem hafa verið í haust. En ekki nóg með það heldur á þessari helgi er líka ball á vegum vinnunnar, afmæli hjá einum besta vini Arnars OG fyrsta D-bekkjarpartí vetursins.. ! Allt á sömu helginni.. - núna vilja aftur vísa í trúmanþáttinn - þetta getur ekki verið tilviljun - ég hef aldrei neitt annað nema að læra að gera á helgum

Eníveis, þetta er komið út í eitthvað neikvæðnisblogg - átti nú ekki að vera svoleiðis. Þrátt fyrir allt er lífið samt frábært. Á maður ekki að horfa í heilsuna o.s.frv. ég meina maður lætur sig hafa ýmislegt á meðan heilsan er í lagi (finnst samt að ég sé að fá einhverja kvefpest :S en það tekur 2 daga!)

Bið að heilsa í bili - kv. Ásta Björg

laugardagur, október 13, 2007

ekkert að frétta..

Ókey, ég verð að skella inn nokkrum vel völdum orðum..

Brjálað að gera í skólanum.. Verkefnin hrannast upp en samt ekki, Það er alltaf gaman í skólanum og ég er ekkert lítið sátt með það.. næsta föstudag á ég að vera búin að gera 20 mín. söng upphitunarprógram.. spennó ;)

Annars er bara brjálað gaman hjá mér. Skólinn æði, Vinnan æði, og allt bara rosa gaman :D

Við Arnar fórum í leikhús í gær ásamt Bigga, Flóka og Ingu kærustu hans. Fórum að sjá Killer Joe. Jáh, og það er ekki fyrir viðkvæmar sálir! Flott leikrit samt.. !

Eníveis..

bið að heilsa í bili, er allt of upptekin við að hlusta á tónlist og reyna að heyra í þulunum sem eru að lýsa Ísland-Lettland leiknum.. Get alls ekki mælt með þeim!

kv. Ásta Bj

laugardagur, september 29, 2007

vikulega bloggið :D

Mér finnst að ég eigi að fá verðlaun. Ég var í gær, uppi í skóla, á föstudagskvöldið að læra til að verða tvö! Á FÖSTUDAGSKVÖLDI! og ekki bara að læra hvað sem er.. heldur hljóðfræði [vi:h] :D

Eníveis.. Mamma og Salvör Sól eru hérna hjá mér núna. Eða réttara sagt þá er mamma að kenna uppí háskóla og Salvör Sól í pössun hjá mér.. hún er bara ansi dugleg að naga fingurna og segja mér sögur sem innihalda mikið af "aaahhhhaaaaagg" og "heegg heeeaaag" (get ekki sett inn þýðingu því ég veit ekki hvað hún er að tala um)!

Skólinn er komin á fullt (enda að koma október..) og á fimmtudaginn skilaði ég 40% ritgerð í tónmennt. Ég vona að hún hafi verið skítsæmileg en við fáum hana þó aftur og skilum aftur.. þá VERÐUR hún að vera skítsæmileg!

Þessi helgi fer mest í að læra, núna hljóðfræði, svo siðfræði og leiklist. Á morgun verður svo dinner með afkomendum Salvarar langömmu svo að það er nóg að gera :D

Ég bið bara að heilsa í bili.. hef s.s. ekkert að segja..

kv. Ásta Björg