miðvikudagur, desember 26, 2007

Gleðileg jól.. Ég er búin að hafa það rosa gott hérna heima.. LETI LETI LETI og knúserí því litla systir er alveg fullkomin knúsdúkka :D Mér finnst þó vanta Arnar minn - þoli ekki að það þurfti að vera annað hvort eða - ekki bæði :(
Það var brjálað að gera fyrir jól - jólagjafainnkaup ;) það var þó mjög gaman og sem BETUR FER finnst mér gaman að pakka inn jólagjöfunum því það var NÓG að pakka inn OG ég gerði það strax því á fim. fyrir jól tognaði ég svo illa í hægri hönd að ég fór ekki að geta notað hana fyrr en á aðfangadag en þó bara rétt, á enþá í vanda með hana og er mjög máttlaus í henni :s


Ég fékk alveg yndislegar jólagjafir - takk svo mikið mikið fyrir mig. Ég get ekki verið annað en ánægð með allan þann fjölda gjafa sem ég fékk og þann mikla hug á bak við þær, takk elskurnar mínar :)


Ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili því ég á erfitt með að skrifa á lyklaborðið.. Bið að heilsa öllum og vonandi hafa allir átt jafn yndisleg jól og ég.. :D
Við Salvör Sól á aðfangadag
Kveðja, Ásta Björg

Engin ummæli: