laugardagur, desember 01, 2007

Desember til Dásemdar



Þessi kona gladdi mig mikið þegar ég fór inn á MBL í morgun - þetta þýðir náttúrulega margt:


Alveg að verða búin í prófum (ég er náttúrulega ekki byrjuð en verð búin 3. des - á maður ekki að vera jákvæður??)


Útborgun (ekki lengur fátækur námsmaður í nokkra daga..!)


Stutt í að ég fari vestur og faðmi alla að mér sem mér þykir svo rosa rosa vænt um


Stutt í Guðbjargarafmæli OG dagana sem snúast um frið og kærleik - ég elska báða hluti


og svo að lokum..


Þessi mánuður gefur svo mörg tækifæri til að gleðja þá sem standa þér næst
Vonandi eru allir hamingjusamir í dag og njóta þess að þrátt fyrir stuttan dag þá eru að týnast upp ljós í hverju horni til að lýsa upp lífið..
(í tilefni að því er ég búin aðsetja inn nokkur jólalög og jólalegri myndir)
elska ykkur, tja lang flest örugglega ;)
kv. Ásta Björg

Engin ummæli: