miðvikudagur, júlí 18, 2007

Viðtal og fleira


Það er eins og alltaf brjálað að gera hjá mér.. ha..! Ætlaði að henda inn myndum í gær en haldið þið að hún móðir mín hafi ekki rænt tölvunni og farið að skrifa umsögn um hann afa Hannibal út frá frásögnum vinum og fjölskyldu (og þá sérstaklega pabba jóa og Siva sem sátu með henni við eldúsborðið). Mér var þó nokk sama því í staðinn fékk ég að kynnast afa mínum óbeint (jáh, ég má segja afi, Þorsteina amma var amma mín..!)


Annars ætla ég svoo mikið að reyna í kvöld. Litla systir er orðin tveggja mánaða gömul og dafnar vel, þessi elska..


Þið getið svo lesið smá frétt frá vinnunni minni hér. Tekið var mjög óformlegt viðtal við mig áðan um atvinnuleysi á Vestfjörðum. En hva.. ég er með þetta alveg á hreinu :D


Ætlaði bara að láta vita af mér.. kem með persónulegu pælingarnar síðar..


jáh, og til Hamingju Adda og Atli með brúðkaupið :* Þið eruð æði - og ekkert smá flott mynd af ykkur :D

Fékk myndina frá Regínu vinkonu.. (vona að það sé í lagi að setja hana hér inn)

Bið að heilsa í bili

Ásta Björg


1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku Ásta mín !

Takk fyrir hamingjuóskirnar ! Það var svo mikið um að vera hjá okkur.. Ég vona að þú hafir það gott fyrir vestan og vonandi sjáumst við sem fyrst :)

Bestu kveðjur,
Adda