Ég gleymdi að segja það í morgun að ég fór á íslandsmeistaramót hjá 6 fl. í handbolta á sunndaginn. Mótinu er skipt í þrennt og var þetta fyrsti liðurinn. Ágúst bróðir var að keppa og ég var orðin svo spennt í úrslitaleiknum að ég var að fara yfir um. Vá, brósi varði og varði.. ekkert smá stolt af honum. Svo fer hann að keppa á næstu tveim mótum.. Aldrei að vita nema maður gerist áðdáandi 6.fl handboltastráka í FH.. :D ein svona meðfylgjandi mynd af honum sæta brósa :D
til hamingju með sigurinn (tilvonandi afreksmaður í handbolta - markamaðurinn mikli Ágúst (ég sé fyrirsagnirnar ;) ) )

Við Tinna Mark ætlum svo að fara í heimsókn á leikskólann okkar á föstdaginn.. Ég er farin að sakna svo barnanna að ég hlakka ekkert smá til. Það var svo gaman að kynnast þeim og vera með þeim og horfa á þau vaxa. Forréttindi að fá að hafa unnið á leikskóla. Gefur manni svo ótrúlega mikið. Maður trúir því ekki..
EN já. bið að heilsa í bili.. Próf í Þroskasálfræði á morgun þannig að maður þarf víst að læra í dag.. aldei að vita nema þriðja færslan komi í dag.. enda er ég á eldi.. :D (hef alltaf verið léleg í ritaðri ensku svo það er auðveldara að skrifa á íslensku, stundum virkar það en stundum ekki.. )
kv. Asta Bjorg
p.s. ég er dottin inní að skoða www.swordmetal.com. Ég veit eila ekki afhverju. Ég held ég sakni þessarar síðu en samt hef ég aldei verið á henni.. Kann ekkert á hana en samt er hún skemmtileg.. :S svona er maður skrýtinn..
Engin ummæli:
Skrifa ummæli