sunnudagur, október 22, 2006

Jennifer Aniston

hahahaha, gat ekki annað en farið að hlæja yfir þessu videoi..

Hvað, er ég að klúðra þessu, ég var komin á svo gott bloggskrið!

Jæja, á Miðvikudaginn eftir vinnu brunaði ég til Arndísar í Grafarvogin þar sem hún bauð í mat. Það var alveg yndislegt og maturinn að sjálfsögðu rosalega góður. Við sátum bara og röbbuðum og horfðum svo á ANTM :)

Fimmtudagurinn var bara svipaður. Ég fór til Pabba og Laufey í mat og það var svoo góður matur (jáh, ég þarf ekkert að hafa fyrir því að elda ;) ) Svo horfðum við saman á Bandidas (tiltölulega ný mynd).

Á föstudaginn kom svo mamma í bæinn og við fórum í bíltúr, á kaffihús og í heimsókn.. svaka stuð á okkur, um kvöldið fórum við Arnar svo í bíó á Beerfest sem er svona tja, alveg ágætt. Óttarlegt bull á köflum en ágætis afþreying :) Á laugardaginn fór ég svo í Toyota umboðið að fræðast aðeins um Nýja tegund af bílum sem eru að koma á markaðinn. Rosalega sniðugt og spennandi. Svo fórum við Arnar í bíltúr upp á Borgarnes því það var ekki hægt að láta þetta æði veður fram hjá sér fara. Um kvöldið fórum við í pool (og ég er svoo góð í pool :D) Staðan var 2-2 (en í raun 3-0 fyrir Arnari) Mér líst betur á 2-2 :D.

Fjúff ég fór frekar snemma að sofa í gær, eða rétt rúmlega 1. Ég gat bara ekki vakið lengur en það gerði það líka að verkum að ég vaknaði snemma en nennekki að gera neitt (er bara að bíða eftir að leikurinn Man.Utd - Liverpool byrji)

Annars er allt bara ágætt að frétta, það er alveg nóg að gera (eins og alltaf) og skólinn ríkir yfir lífi manns. Ég verð nú samt bara að segja að ef þið vitið ekki í hvaða nám þið eigið að fara, komið þá suður í Kennó! það er bókstaflega e-ð fyrir alla og það er hægt að púsla náminu sínu á ótrúlega marga vegu :) alveg æði, get ekki beðið þangað til á næsta ári því þá fer í að læra leiklist og tónlist :D

En já, ég bið bara að heilsa í bili, ætla að fara út að skokka (nennekkað byrja að læra strax og alveg klukkutími í leikinn)

kv. Ásta Björg

Engin ummæli: