föstudagur, september 01, 2006

Komin heim, brún og sælleg :D

Þá er maður komin heim úr hitanum. Ég verð að viðurkenna að ég var ansi fegin þegar ég steig inn um dyrnar heima. Vera komin heim. Þó var mjög gaman úti. Gott að fá smá sól og hita en öllu má ofgera.. Ég náði að klára þennan blessaða Hobbita svo næst á dagskrá eru L.O.T.R bækurnar. En allavega þá var mallorca ferðin bara pura afslöppun. Var bara á ströndinni, í sundlaugagarinum, upp á herbergi þegar mér var orðið of heitt, í Palma, Inka og Festival Park (þar sem ég keypti mér þrjú pör af NIKE skóm) :D Segi meira frá ferðinni síðar, nenni því ekki núna. Einn dagurinn líður manni seint úr minni.

Maður tók smá lit (enda orðin þokkalega hvítur af rigningu og öðru ógeði á höfuðborgarsvæðinu) Svo maður getur ekki verið annað en sáttur.

Núna er næst á dagskrá skólinn. Er búin að kaupa nokkrar bækur en ekki allar (er samt komin yfir 30 þús kaddlinn) svo það er ein gott að maður eyddi ekki miklum peningum úti. En annars er ég bara nokkuð spennt að byrja í þessu öllu saman. Skemmir heldur ekki fyrir að hafa Steinunni með mér í þessu, enda hress og klár lestrarhestur ;) .

Inga Lára átti svo afmæli 30. ágúst, til hamingju með það (Ég óskaði hennar reyndar til hamingju með afmælið 31 og sagði "til hamingju með daginn í dag" eins og algjör bjáni en mér til varnar var ég algjörlega búin að missa marks á tíma og dögum eftir utanlandsferðina og trúði því sterklega að 30 væri þann dag en ekki 31!.

En núna ætla ég að kveðja í bili,

sérstaka kveðju til Tinnu Markaskorara hjá Stjörnunni ( Ótúlega stolt af þér stúlka :D )

Og til Beggu danmerkurfara, (væri sko meira en mikið til í að fara að heimækja þig úti núna ef ég ætti einhverjar krónur - en stefni nú samt á það hvernig sem fer, sakna þín mest)

set inn eina mynd af okkur arnari úti á spáni svona í lokin.. :)

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jiiiii hvað þú ert brún!!!!! :D