Hannes bauð mér í Sjávarkjallarann. Rosa flottur staður með góðum mat. Núna get ég líka sagt að ég hafi smakkað Ostrur og KóngaKrabba. Ég mæli með þessum stað. Góð þjónusta fanns mér og alveg ferlega gaman að smakka mat sem maður fær ekki á hverjum degi. Saltfiskur fékk líka alveg spánýja meiningu í mínum huga. Hann var svo góður að þegar ég heyri næst að það sé saltfiskur í matinn ætla ég sko ekki að segja.. ojj, æ mig langar ekki í saltfiskm heldur Vá, saltfiskur, nammi namm :p
Stefnan er svo tekin á egilstaði klukkan 12 á hádegi á morgun. Það verður bara brunað austur (skrýtið að segja austur en ekki vestur). Svo er það bara vinna í kvöld, hlakka ógeðslega til, verður örugglega alveg BRJÁLAÐ að gera því að það er LOKSINS komin sól eftri þessa rosalegu rigningardaga. Það eina sem hringir í kollinum á mér er ding ding bragðarefur dong dong bragðarefur.. (þið vitið hvað ég á við sem hafið unnið á góðviðrisdegi í sjoppu sem selur ís)
Það er sem sagt bara allt í gúddí fíling hérna hjá mér svo er ég líka búin að setja teljara OG gestabók (sem ég er reyndar ekki nógu ánægð með en samt á að skrifa í hana) og svo líka nokkra linka, sem ég á nú eftir að fjölga. En þetta er nú bara byrjunin og enn og aftur á ég þetta allt Veru Dögg að þakka :) TAKK, þú ert best :D
fimmtudagur, júlí 14, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli