fimmtudagur, ágúst 09, 2007

París, París París

Þá ættu flestir að vera búnir að átta sig á því að ég er að fara til Parísar. Fer út 19. ágúst og kem heim 26. ágúst, eða í rauninni 27 því að við lendum um nóttina. Svo byrjar skólinn hálf níu um morguninn.. ansi hress verð ég þá :D Núna er ég svona að byrja að plana ferðina. Ég er neflinlega þannig að ég þarf alltaf að vera búin að ákveða allt. Hvenær á að skoða safnið, hvenær á að fara í turninn, hvenær versali og disney o.s.frv. Og í París er sko nóóóg að gera. Hótelið okkar er á fínum stað, rétt hjá Óperudraugshúsinu og þar sem við Arnar erum miklir aðdáendur þeirrar sögu þá verðum við náttúrulega að fara þangað :D


Annars er verslurmannahelgin afstaðin og ég keppti í myrarbolta :D (ef þið klikkið á linkinn þá sjáið þið fréttirnar). Ég kom í fréttunum og lak framfyrir mig DRULLUskítug eftir mjög misheppnaða tilraun til að sparka boltanum fram (var föst í leðjunni). Þetta var ansi skemmtilegt nema hvað að núna er ég ÖLL út í marblettum, svörtum stórum marblettum og líka með tvö ljót sár ég annarri hnéskélinni eftir takkaskó. Á næsta ári ætla ég að fá því framgengt að bannað sé að vera í takkaskóm í mýrarbolta. En hvað um það. Við - rækjurnar (en það var liðið okkar) unnum verðlaun. En þau voru Prúðasta liðið, hef reyndar heyrt að það séu skammarverðlaun í mýrarboltanum en engu að síður er ég sátt. Við vorum jafnframt eina liðið sem þurti ekki að mæta aftur daginn eftir til að keppa í úrslitum, takið eftir "þurftum ekki""! (vorum mjöög sáttar með það, enda blautar, kaldar og meiddar eftir önnur ekki svo prúð lið!)

Eníveis.. Var að skoða myndir af mér síðan ég var lítil og ákvað að skella inn tveim svona upp á ganni ;) Kannski erum við Salvör Sól e-ð líkar :)



bið að heilsa ykkur í bili..

kv. Ásta meidda á leið til Parísar

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

París smarís ....

Þið eruð sætar systur