föstudagur, desember 08, 2006

jæja, tilraun 15.. hlustið og njótið...

jæja, ég er búin að vera að reyna að blogga hérna í allavega tvo daga.. ég ætla að reyna EINU SINNI ENN!

Þetta skrifaði ég sl. miðvikudag.. nenni ekki að breyta færslunni..:





Þessi lög komu mér svo sannarlega í gegnum lærdóminn.. fjúff.. þetta og Enya.. jáh.. Radioblogclub er svo sannarlega sniiiilld.. :D

En já.. eitt próf búið.. og það erfiðasta jibbííí.. núna eru bara 3 eftir.. öll í næstu viku. Ég held ég geti fullyrt að ég hafi aldrei á ævinni lært svona mikið í einu. Stefnan var tekin upp á bókhlöðu klukkan 8:15.. lært til 22:00 en auðvitað með klukkutíma hléi í hádegi og mat og nokkrun 5 mín. hléum. Svo þegar heim var komið hélt ég áfram að læra alveg til tvö um nóttina og vaknaði aftur daginn eftir klukkan átta .. jáh. enda var ég búúúin á því þegar ég kom heim í dag eftir próið. Var bara heppin að sofna ekki í því.. .. En núna er bara að sökkva sér í næsta próf. Það er nú svolítill sjarmi í því að vera að læra fyrir próf.. jáh.. ég held það nú bara.. :D

en núna er komið nóg í bili.. hlustið á Nickelback :D rosa góð læritónlist (ef maður missir sig ekki í viðlögunum

kær kveðja.. Ásta Björg :D

Engin ummæli: