...gerir maður alltaf ráð fyrir því að allir hugsuðir, fræðimenn og heimsspekingar séu karlmenn. Ég er núna að læra fyrir Inngang að uppeldisvísindum. Ferlega skemmtilegur áfangi þar sem margar kenningar og hugmyndir hinna ýmsu fræðinga líta dagsins ljós. Þegar ég er að lesa stendur nafnið á fræðimanninum sem um er rætt. Svo hvaða kenningar þessi höfundur hafði o.s.frv. alltaf verð ég jafn hissa þegar það kemur.. "hún lagði mikla áherslu á..". Hún.. hún.. ég bara whaaa.. Það er nú bara einu sinni þannig að konur og karlar virðast heita mjög líkum nöfnum, altso eftirnöfnum. Maður fær sjaldnast að vita fornöfnun á þessum fræðingum. Ætli t.d. Platón hafi heitið e-ð meira. Var það fornafnið hans eða eftirnafn.. jáh, maður spyr sig. Núna síðast var ég t.d. að lesa um fræðing sem hét Arendt. Ég í fáfræði minni var alveg viss um að þetta væri karl en svo stóð bara "hún lagði áherslu á..". Afhverju ætli þetta komi svona á óvart? Er samfélagið bara þannig að hugsuðurnir eru karlar..? eða, það var allavega svoleiðis er það ekki? Jæja.. ég ætla allavega að ryna að yfirstíga þessa hugsun.. segi bara við sjálfan mig "ásta, konur voru og eru líka miklir hugsuðir".
ég ætla þá að snúa mér að A.S.Neill sem vildi hafa skóla þar sem börnin voru frjáls, bjuggu til eigin stundarskrá, engin stundarskrá o.s.frv.
kv. Ásta Björg
föstudagur, desember 08, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli