Ég hef aldrei vitað annað eins. Ég var í prófi í gær í inngang að uppeldisvísindum og var prófið 3 klst, eða frá 9 til 12. Þegar klukkan var 9:50 var ég búin með prófið OG búin að fara yfir það! Nú er bara að bíða og sjá hvernig það kemur út. Ég er allavega mjög hissa yfir því hve fljót ég var.
Á morgun er próf í Stærðfræði. Það er að mínu mati erfiðasta prófið svo það er eins gott að læra.. verst bara hvað maður verður þreyttur á því einu að hugsa um það.. en um þetta leyti á morgun verð ég líka búin í prófum og á þá bara eftir að skrifa eitt stykki ritgerð. (ég fekk 8, 8.5 og 9 fyrir síðustu þrjár ritgerðir sem ég hef fengið einkunn út úr svo þetta hlýtur að verða í lagi.. fæ reyndar út úr einni ritgerð á morgun sem var b.t.w. algjör steypa svo ég hlakka ekkert mikið til að fá einkunnina..) Þetta reddast..
Var að búa til myspace síðu.. hún er reyndar ekki tilbúin en endilega skoðið.. ég hef ekki alveg haft tíma til að gera hana eitthvað úber flotta en þetta er allt að koma hjá mér.. svo megið þið endlega adda mér sem vini eða e-ð.. alltaf gott að mynda svona "tengsla" net :)
myspace.com/heimasaetan
kv. Ásta stærðfræðingur
fimmtudagur, desember 14, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli