fimmtudagur, október 06, 2005

ótrúlegur morgun

Ég átti að fara í próf í kröfurétt í morgun. Ég stóð í þeirri meiningu um að prófið ætti að byrja klukkan 8:15 eins og skólinn byrjar alltaf og lagði af stað að heiman klukkan 8:05. Ég var komin í skólann 11 mín yfir og hugsaði með mér að ég ætti nú að vera á góðum tíma. En nei...! Prófið byrjaði kukkan 8:00 og allit voru byrjaðir þegar ég mætti og nánast hvergi var hægt að fá sæti.

En áður en prófið byrjaði og áður en ég lagði af stað í skólann gékk allt á afturfótunum. Ég vaknaði klukkutíma síðar en ég ætlaði, náði þ.a.l. ekki að fara yfir restina og náði ekki að borða morgunmat. Ég datt niður stigann en fattaði þegar ég hafði dottið niður stigan að ég hafði gleymt lyklunum mínum uppi. Þegar ég var komin út í bíl þá áttaði ég mig á því að ég var ekki með lagasafnið mitt og þurftið að hlaupa aftur inn og upp stigan og inn í herbergi og út og á meðan ég var að þessu fattaði ég að ég var ekki með pennaveskið mitt, og tók þá 3 mín að leita af því svo alltí einu laust upp fyrir mér að ég kunni ekki prófnúmerið mitt þannig að ég átti eftir að fara á netið, finna prófnúmerið og læra það utanbókar. Ég hugsaði þá með mér að ég myndi finna prófnúmerið áður en ég færi inn í tíma því að ég var svo tímanlega sem ég var náttúrulega ekki.

Þetta er semsagt búið að vera alveg rosalegur morgun og ekki gékk heldur allt í sögu í prófinu því að ég mundi bara hvar efnin sem komið var inn á prófinu var í bókinni en ekki um hvað þau fjölluð..

ojæja, ég er núna bara í tíma í EES og kennarinn var að enda við að segja að hann ætlaði að lengja tímann um hálftíma.. ég meina kommon, ég verð að komast heim! Ég er að fara í klippingu og litun á eftir (er að fara að verða dökkhærð aftur) En ætli ég eigi að þora miðað við hvernig morguninn er búin að vera, ég er líka svo svööng..

Engin ummæli: