laugardagur, september 17, 2005

fréttir

jæja, þá sit ég hérna heima hjá arnari að leika mér í tölvunni. Ég er búin að vera að læra í morgun og er að fara vinna núna klukkan 4. Er samt að hugsa um að nýta þennan síðasta klukkutíma í að fara eitthvað út, nenni ekki að hanga hérna lengur.

Helgin síðasta var alveg frábær. Ég kom "heim" á fimmtudaginn og var bara í faðmi fjölskyldunnar það kvöld, það var alveg frábært. Á föstudeginum var ég svo að læra um morgunin á meðan systur mínar voru í skólanum og svo lékum við okkur saman fram á kvöld mat, um kvöldið skrapp ég svo aðeins til Pálínu í einhverja snyrtivörukynningu (ekki alveg fyrir mig) og svo fór ég til Arndísar. Við Arndís fórum svo til Guðrúnar Fanneyjar sem er frænka hennar Arndísar, en hún er ný flutt til Ísafjarðar. Svo héldum við þrjár saman í partei til Karenar (stelpa úr arndísar bekk sem er í MÍ) og svo á sjallan.. þetta var alveg ágætis kvöld þrátt fyrir mjög svo óheppilegan endi.

Þegar heim var komið (altso aftur til Bolungavíkur)komst ég ekki heim tíl mín svo að ég gisti hjá henni dísu skvísu. Daginn eftir kom mamma og náði í mig til hennar um þrjú leytið svo að ég var alveg heillengi hjá henni yndislega skemmtilegu Arndísi, ótrúlega var gaman að hitta þig :D

Um laugardagskvöldið náður skötuhjúin Berta og Hjörtur í mig og við fórum í pítsu / singstar partei til Gunnu Dóru. Vorum að fagna því að hún væri loksins komin á frónið eftir 8 vikna dvöl á spáni. Það var alveg ferlega gaman og skemmtum við okkur mjög vel. Nema hvað að söngfuglinn sjálfur( ég ) var með svo mikla hálsbógu að hann gat varla talað og kvað þá tekið þátt í singstar, það var ekki gaman. Leiðin lá svo á kjallarann (ég varð nú að fá að sjá þennan nýja og fína skemmtistað Bolvíkinga) og sitið var og spjallað fram á nótt. Á sunnudeginum fórum við mæðgurnar í sund ásamn litlu englasystrunum mínum. Þegar ég kom síðan aftur suður og arnar búin að ná í mig á flugvellinum fórum við í leikhús með hluta af leikendunum í leikritinu Að eilífu sem var sýnt í Menntaskólanum á Ísafirði fyrir nokkrum árum. Ástæða þeirrar leikferðar var sú að það var verið að sýna sama leikrit, nema á rússnesku, í þjóðleikhúsinu. Það var alveg ferlega skemmtilegt og að leikritinu loknu skruppum við aðeins á dubliners til að ræða um það sem við höfðum verið að horfa á.

í vikunni sem er að líða hef ég bara verið í skólanum og að vinna. Í gærdag var ég að gera stórt verkefni í skólanum sem ég fékk í hendurnar klukkan 13 og átti á skila klukkan 18. Ég Margrét Magnúsar og stelpa sem heitir Hrafnhildur vorum að gera verkefnið saman og tja, gékk það svona upp og ofan. Ég var ágætlega sátt þegar ég var búin að skila því af mér klukkan 17:58 (en þá höfðum við verið að skrifa til 17;57). Reyndar hefðum við verið til í að skrifa meira og gera það aðeins betur og fannst okkur þessír 5 tímar sem við fengum til að gera verkefnið alls ekkí nóg. Núna er ég aftur á móti alveg ferlega óánægð með það og langar að fara að gráta yfir því að hafa skilað því eins og það var. en ég varð..

jæja, best að fara út að gera e-ð áður en ég fer að vinna!

kv. ástabj

Engin ummæli: