þriðjudagur, ágúst 16, 2005

vá, þegar ég kom heim úr vinnunni (kvöldvinnunni) í gær var kall (ógeðslegur kall) með vasaljós og fötu að skoða grasið þar sem ég legg alltaf bílnum. Ég var svo hrædd við hann að ég þorði varla út úr bílnum, ég var alveg handviss um að hann væri að týna sveppi. Ojj, ég bjóst bara bið að hann myndi ráðast á mig eða e-ð :S

Hafiði aldrei lent í því að e-ð nafn gefur ykkur bara hroll! Ég fæ alveg grænar ef ég heyri eitt ákveðið nafn, og það versta er að ég er alltaf að heyra það! Allann daginn, líka á kvöldinn og ég fríka út. Ég þekki bara eina manneskju sem heitir þessu nafni og ég hef ekkert á móti henni en þetta nafn hefur sögu sem ég er ekki alveg sátt við. Vantaði bara að deila þessu með e-jum..

En núna er ég bara að vinna og að fara út, eftir bara 2 daga. Vonandi get ég tekiðhugan frá hlutunum eins og þeir eru og farið að hugsa um sól og græna skóga!

Engin ummæli: