miðvikudagur, júlí 20, 2005

Brjáluð :s

Ég held að ég sé brjáluð. Held ég skrifi nokkra punkta um það:

* Ég var nánast búin að ráða mig í vinnu á Egilstöðum
* Ég er að fara að skoða íbúð á Kópavoginum á eftir til að kaupa
* Hún kostar 12.900.000
* Ég á ekki 12.900.000
* Ég stökk fram af brú á Egilstöðum
* Mín helsta martröð er að vera í frjálsu falli
* Ég er að hugsa um að fara í Galtalæk um verslunarmannahelgina
* Ég er að fara í lögfræði

Þetta er svona í grófum dráttum það sem gerir mig brjálaða. Aðallega íbúðin samt. :s

Annars var alveg frábært á Egilstöðum. Við fórum í sund þar sem strákarnir fóru mest 80 ferðir í rennibrautinni. Ég fór nú enga, féll ekki alveg inn í þennan rennibrautarhóp að mér fannst. Egilstaðir er mjög fallergur og heillandi bær, hver veit nema ég flytji þangað e-ntíma, aldrei að vita. Frábært alveg að hitta Anítu(kærustuna hans Dóra), hún er alveg rosa fín stelpa.

Ég get ekki beðið eftir að fara til útlanda, það eru bara 29 dagar þangað til :D víí og þá er það Costa Del Sol í 2. vikur. Og svo skólinn þegar ég kem heim. Mér finnst þetta æði, tala nú ekki um þegar ég get verið í nýju íbúðinni minni.. í hamraborginni

bið bara að heilsa í bili,´

kv. ásta bj