mánudagur, júní 13, 2005
lífið er skemmtilegt
Lífið er fullt af skemmtlegum uppákomum og ótrúlegum tilfinningum. Í gær og í dag hef ég hugsað alveg rosalega um hana Diny (hún var au-pair heima á hanhóli einu sinni) Ég sendi henni e-mail bara svona upp á jókið og þegar ég er í þann veg að senda þá kemur hún inn á msn.. en bjáninn ég stóð upp rétt áður og fór að stússast og þegar ég fatta að ég ætlaði að senda e-mailið þá hafði hún byrjað að tala við mig en ég náttla ekki svarað svo að hún var farin off-line! Ég varð ekkert smá svekkt. Fyndið samt að akkurat núna þegar ég var farin að hugsa til hennar og svona spá hvað hún væri að gera þá komi hún inn á msn að spjalla við mig. Núna er ég hinsvegar alveg í bömmer yfir því að hafa misst af því :(
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli