Núna sit ég inni í skóla að læra, eða ég segi allavega örðum það (ég læri allavega ekki mikið á því að skrifa hér..) Allavega.. á meðan þessum svokölluðum lærdómi mínu stendur er é
g að hlusta á rólega tónlist. Valdi um daginn nokkra afslappaða undirtóna diska sem gott er að hafa í eyrunum á meðan lærdómi stendur því þeir trufla ekki einbeitinguna. Ég hef núna síðustu 20 lög eða svo verðið að bíða eftir take that lagi því ég setti playlistan á random. Aldrei kom það en á meðan komu 3 James Morrison lög, 2 Cranberryslög og 2 queen lög. hmm, er þetta náttúran að segja mér að hætta að hlusta svona mikið á Take that - tilviljun?
Þegar ég vaknaði í morgun og fór út í bíl tók ég eftir því að það var seðlaveski fast undir rúðuþurkunum mínum. Ég kíkti og sá hver átti veskið. Þar sem ég var á leiðinni að keyra móður mína á flugvöllin hafði ég ekki tíma í að athuga hver eigandinn af þessu veski var. Ég nefndi fund minn við móður mína og sagði henni nafnið á eigenda gripsins og hugsuðum við ekki meira út í það. Þegar heim kom hringir hún í mig og segist vita hver eigi veskið. Þá var það gamalt skólasystkin hennar úr gagnfræðiskóla og þetta skólasystkyn hafði líka verið á leiðinni vestur á firði OG fékk sæti við hliðina á móður minni.. Núna veit ég hvert ég á að fara með veskið. Tilviljun?
g að hlusta á rólega tónlist. Valdi um daginn nokkra afslappaða undirtóna diska sem gott er að hafa í eyrunum á meðan lærdómi stendur því þeir trufla ekki einbeitinguna. Ég hef núna síðustu 20 lög eða svo verðið að bíða eftir take that lagi því ég setti playlistan á random. Aldrei kom það en á meðan komu 3 James Morrison lög, 2 Cranberryslög og 2 queen lög. hmm, er þetta náttúran að segja mér að hætta að hlusta svona mikið á Take that - tilviljun?Þegar ég vaknaði í morgun og fór út í bíl tók ég eftir því að það var seðlaveski fast undir rúðuþurkunum mínum. Ég kíkti og sá hver átti veskið. Þar sem ég var á leiðinni að keyra móður mína á flugvöllin hafði ég ekki tíma í að athuga hver eigandinn af þessu veski var. Ég nefndi fund minn við móður mína og sagði henni nafnið á eigenda gripsins og hugsuðum við ekki meira út í það. Þegar heim kom hringir hún í mig og segist vita hver eigi veskið. Þá var það gamalt skólasystkin hennar úr gagnfræðiskóla og þetta skólasystkyn hafði líka verið á leiðinni vestur á firði OG fékk sæti við hliðina á móður minni.. Núna veit ég hvert ég á að fara með veskið. Tilviljun?
Í dag fór ég út í búð að kaupa mér mat. Mig langaði rosalega í eitthvað sætt því eitthvað þar skemmtilegt þegar maður er að læra fyrir próf. Það sem blasti við mér þegar ég kom á staðinn var "50 prósenta afsláttur á Laugardögum - og nú er hann". Tilviljun? (eða kannski bara laugardagur).
Fór með Pabba hans Arnars að kaupa dekk á bílinn minn svo hann fengi skoðun. Fékk 4 fín dekk + umfelgun og sett undir bílinn fyrir aðeins 10.800. GOTT fyrir fátæka námsmenn - buddan minnkaði, sultarólin þrengdist en ég er ekki á leiðinni í bankann að fá lán.
Jæja.. læra.. ég held það.. (jæja, TVÖ QUEEN lög í röð en ohh, ohh,, ekkert Take That lag..!)
Kv. Ásta


Engin ummæli:
Skrifa ummæli