miðvikudagur, júní 21, 2006

Gleðidagur, að mestu allavega

Loksins er sólin komin. Ég held hún hafi komið út af gleðideginum í gær. Í gær var neflinlega borið út lítið bréf í póstkassann minn. Í litla bréfinu stóð að ég hefði fengið inngöngu í Kennaraháskólann.. :D Jeij.. ég komst inn.. Auðvitað komst ég inn, það var náttúrulega aldrei nein spurning.. en jeij..

En.. gleðin er samt ekki nógi góð, því að ég get ekki verið úti í góða góða veðrinu.. af því að ég er veik. heima, ein, :( ég hata að vera veik, en ég taldi betra að vera veik heima til að geta þá farið í vinnuna á morgun heldur en að vera veik í vinnunni og í marga daga til viðbótar..! það eina jákvæða við að vera heima er að það er spennandi leikur í sjónvarpinu milli Portugal og Mexico (hefði samt viljað vera í vinnunni.

Enívei, skólinn byrjar 4 sept þannig að núna get ég farið að skoða utanlandsferðir fyrir alvöru og það er baara æði.. Það var svo ótúlega gaman að hafa fengið
inngöngu, mig langaði svoo í skóla. Það er svo gaman.

Sautjándi júni var sl. laugardag. Það var rigning svo að ég nennti ekki að gera neitt í bænum. Fór aðeins í bæinn um kvöldið og kynntist reyndar fána sem heitir Halldór. Ég bauð honum með í útsýnisferð um bæinn og til að minnast hans ætla ég að setja inn myndir af honum..
Ég og Halldór fáni í Perlunni..


Ég og Halldór fáni á Vikingahátíð í Hafnarfirði


Ég og Halldór Fáni að fara á golfvöllinn


Ég og Halldór fáni í grasinu (við erum svo rómatísk ;) )


Ég og Halldór fáni á miðnætti..


Jáhá.. Það er nóg um að vera.. aldrei að vita nema maður bjóði Halldóri með sér í sumarfrí eða í útsýnisferð um Ísland á Gullfoss og Geysi, Þingvelli eða jafnvel út fyrir landsteinana..

EN núna ætla ég að kveðja í bili, því dagurinn var að verða betri með sigri Portugala í leiknum sem ég var að horfa á :D

kv. Ásta Björg