laugardagur, febrúar 25, 2006

fullt af spennandi og skemmtilegum hlutum að gerast

Ég er hætt í skólanum og byrjuð að vinna hjá Leikskólum Reykjavíkurborgar. OOG ég fíla það í ræmur! Þetta er yndislegt starf. Núna er búið að hækka launin svo að ég er með það sama í laun og ég væri með í Vinnumiðlun og svo er ég að vinna með svo ótrúlega góðu fólki og yndislegu smáfólki (litlum tveggja ára börnum) Ég hlakka til að fara í vinnuna á morgnanna og þoli ekki föstudaga því þá á ég ekki að mætta í vinnuna daginn eftir. :D:D

Já núna er ég að leita mér að öðru námi. Er að fara að byrja á hraðlestrarnámskeiði til að lesa hraðar (segir sig sjálft :s ) Það er byrjunin á að finna sér annað nám. Þegar ég verð farin að lesa svo hratt að það tekur enga stund að lesa námsefnið þá eru mér allir vegir færir :D jihaa.. Gullsmiðurinn er svona eiginlega dottin uppfyrir sig af þvi að það er allkostar ómögulegt að finna meistara og fá samning hjá honum! og ég hef engin sambönd... svo að ég er bara að skoða HÍ.is og ætla að finna mér eitthvað ótúlega spennandi og skemmtilegt. Kannski fer ég í flugnám. ég meina afhverju ekki :D En núna er ég að leita mér að utanlandsferð. Fer með pabba og fjölsk til USA í ágúst og fer svo kannski líka eitthvað með arnari þegar ég kem heim :) Er svona að skoða þetta.. :)

En ég bið bara að heila í bili.. eitthvað smá til að lesa í smá stund..

Og eins og Vera Dögg benti svo óskemmtilega á í kommenti hérna fyrir neðan eru maaargir sem voru ekki bólusettir fyrir hettusótt og allir eiga að panta tíma og skella sér.. þá sér í lagi strákar svo mannkynið deyji ekki út!

kveðja í bili.. Ásta Björg

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

gangi þér vel elskan mín :) með allt þetta nýja..

Nafnlaus sagði...

Skjótt skipast veður í lofti verð ég bara að segja. Miklar breytingar á þínum bæ;)
Hafðu það gott!!:)

Nafnlaus sagði...

Hæ Ásta mín og gott að sjá lögfræðinginn fljúga út um gluggann. Hvernig væri nú að skoða leik-dans og sönglistina???eða skáldagyðjuna? Vertu lifandi, skapandi og syngjand, þar ert þú best. kv. Gunna.