miðvikudagur, janúar 11, 2006

London - ferðasaga í stuttu máli :D

Okey, ferðasagan um london! Þetta var frábær ferð alveg. Byrjði reyndar á hringsólun yfir london vegna flugumferðar á heathrow. og svo laaangri bið eftir töskunum og svo laaangri lestarferð en loks komumst við á hótelið okkar. Fyrsta kvöldið sáum við buckingham palace, big ben, london parlament london eye og Westminister abbey. Tja, ágætt það. Næsta dag fórum við svo á varðaskiptingu í buckingham palace og svo að veeersla á oxford street, já þþað voru klikkaðar útsölur :D keypti heeeeilan helling :D Þá um kvöldið fórum við aaðeins heim að slaka á og löbbuðum síðan á trafalgar torg og lester torg og sáum fullt af leikhúsum og og vorum með bók um london og lásum og lásum og komumst af alveg heilum helling :D Á laugardeginum fórum við í vaxmyndasafnið maddame tusseo (eða e-ð). Alveg magnað hvað sumar stytturnar eru eðlilegar..



Þegar það var búið fórum við aftur á oxford street og svo í St paul cathetral (eða e-ð :s ) sem er dómkirja, ótúlega falleg. Það fórum við inn og lentum í miðri messu. Óskaplega falleg kirkja og ótúlega slakandi að sitja þarna inni! yndislegt alveg :D svo ákváðum við að skella okkur aftur á oxford street, fengum okkur að borða, heim á hótel og beint að tower of london og london tower bridge. flottur staður maður. Á sunnudeginum fórum við svo aðeins að versla, löbbuðum um st james park, skoðuðum piccadelly sircus og royal academy of art. Svo lá leiðin bara á flugvöllinn í laaangri lestarferð, og laaangri bið á flugvellinum því að það var 1 og hálftíma seinkun á vélinni. Svo hristist hún eins og skopparabolti alla leiðina og já, þetta var rosalegt :s

En þrátt fyrir órólega byrjun og endi var borgin yndisleg og ég ætla alveg pottþett að koma þangað aftur og vera í einhvern tíma. en svo set ég líka myndir inn á aðalmyndasíðuna svo endilega skoðiði :D

kv. ásta :D

Engin ummæli: