þriðjudagur, desember 27, 2005

jólin búin, áramótin á leiðinni

þá er það helsta við jólaösina búið, fyrir utan eitt lítið jólaboð á morgun :)

Það helsta er að ég vann eins og kreisi fyrir jól í Elko og í Rebba og svo klukkan hálf eitt á aðfangadag var ég loksins búin að vinna og gat farið og klárað síðustu gjöfina. Þá þurfti ég bara að bruna til pabba til að keyra út pökkum, bruna aftur heim til að fara í sturtu og pakka inn pökkunum til Arnars og koma þeim til hans (klukkan korter í 6 :s )og svo bruna til pabba.. (svo þegar ég gat loksins slakað á og byrjað að njóta matarins var ég orðin svo þreytt að mig langaði mest að loka aftur augunum og slaka á :s :D )

Annars voru jólin skrýtin, en dásamleg. Mamma, jói og stelpurnar eyddu jólunum saman (sem betur fer!! ) og eg var í rosa góðu yfirlæti hjá pabba, laufey og krökkunum. Á jóladags morgun lét laufey renna í slökunarbað fyrir mig og svo fékk maður fótanudd.. ummm :D

Svo fékk ég líka að hitta Einar bróður hans pabba, ameríkubúa og konuna hans Lesile. Þau gáfu okkur amerískan jólasokk í stað þess að gefa jólapakka svo að við fengum að kíkja í sokkinn á jóladagsmorgun :) Svaka gaman, nú á ég roa fína alabama húfu og university of Alabama treyju o.fl. :D Svo er teknin stafnan á að vera hjá þeim á nstu jólum, væri það æði eða hvað :S :D :D

Annars er maður bara fluttur inn til Hannesar. Við Arnar vorum þar í gær, horfðum á Joey (fengum seríuna í jólagjöf frá ömmu hans og afa) :D og höfðum það rosa gott. Í kvöld tekur svo vinnan við og meiri Joey þegar ég kem heim :D Setti líka Singstar í PS2 í morgun því að ég fékk singstar í jólagjöf frá mömmu, ótúlegt alveg hvað ég kann mikið af 80´lögum :D

Ég stefni á að setja inn myndir bráðlega, bæði af jólahátíðinni heima hjá pabba og líka af því þegar við fórum út að borða í vinnunni. En núna þarf ég að fara að hafa mig til fyrir vinnuna og því miður fer e-ð að næstu dögum í að læra fyrir próf.. :s

en þangað til næst
kv. Ásta Björg

og GLEÐILEGA HÁTÍÐ

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hvað var þetta slæma sem þú varst að tala um í færslunni her fyrir neðan

Nafnlaus sagði...

umm, ég segi þér það síðar.. :D