miðvikudagur, ágúst 17, 2005

my idol

Ég afgreiddi uppáhalds tónlistarmanninn minn í gær uppá Rebba í gær. tónlistarmaðurinn (gæti verið kona eða karl) kom rétt fyrir lokun að kaupa ís og sjeik og bragðaref (yfirleitt verð ég pínu pirruð þegar ég afgreiði þetta þegar ég er búin að þrífa ísvélina sem ég var búin að gera) en ég bara gat ekki hugsað mér að verða pirruð út í hann(tónlistarmanninn)og ég afgreiddann með bros á vör, ji minn, svona getur maður breyst í smákrakka þegar maður hittir "fræga"...